Bifreišasmķši
Bifreiðasmiður
Starfsheitið bifreiðasmiður er arfleifð frá þeim tíma þegar fjöldi manns vann við að byggja yfir hópbíla, jeppa og smíða vöruhús á flutningabíla. Af ýmsum ástæðum hefur dregið mjög úr nýsmíði af þessum toga en þess í stað starfa bifreiðasmiðir einkum við endurbyggingu bíla sem hafa skemmst í umferðinni. Stundum er bifreiðasmiðurinn kallaður réttingamaður en það starfsheiti er ekki fyllilega lýsandi fyrir verkefni bifreiðasmiðsins. Þróun í gerð og smíði yfirbygginga (boddý) bíla og efnisvali hefur verið hröð undanfarin ár. Þeirri atburðarás hafa stýrt kröfur um léttari bíla en jafnframt sterkari yfirbyggingu. Þessar aðstæður gera miklar kröfur um hæfni og handlagni bifreiðasmiða sem ganga daglega til flókinna og vandleystra verkefna. Bifreiðasmiðurinn þarf að meðhöndla margar gerðir málma og plastefna og hann þarf að geta beitt flóknum málmsuðuvélum. Hann þarf að nota réttingarbekki og mælitæki í viðgerðum, fjölbreytt handverkfæri og miklar kröfur eru gerðar um handlagni í viðgerðum.
Helstu þættir í starfi bifreiðasmiðsins eru:
- Mat á umfangi skemmda á yfirbyggingu og öðrum hlutum og kostnaðaráætlun.
- Öflun varahluta.
- Fjarlægja skemmda hluti.
- Mælingar á stöðu yfirbyggingar, endurbygging burðarvirkis, samsetning og varnaraðgerðir gegn tæringu.
- Lagfæring á ytri hlutum, bretti, hurðir, o.s.frv. eða ásetning nýrra hluta.
- Fyrstu stig undirvinnu fyrir málningu.
- Smíði yfirbygginga á hópbíla og vöruhúsa á flutningabíla.
- Innréttingasmíði í stærri gerðir fólksbíla.
Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtöldu grunnnámi bíliðna, samtals fimm annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun. Eftir burtfararpróf frá iðnskóla öðlast neminn rétt til að taka sveinspróf sem leiðir til starfsréttinda í bifreiðsmíði og síðar meir til meistaranáms. Bifreiðasmíði og endurbygging bíla krefst aga og nákvæmni viðgerðarmannsins, hæfni til að leita upplýsinga og vinna úr þeim og útsjónarsemi í vinnu. Bifreiðasmiður sem þjálfar sig samkvæmt þessu er aufúsugestur í starfsgreinum sem byggja á þessum þáttum og kröfum um hæfni.
Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólanum á Akureyri .
Aðalnámskrá framhaldsskóla
Lokamarkmið náms í bifreiðasmíði
Að loknu sérnámi í bifreiðasmíði skal nemandi
- geta skipulagt og útfært rökrétt vinnuferli við viðgerð, uppbyggingu eða nauðsynleg útskipti bilaðra eða skemmdra hluta í öllum gerðum burðarvirkja og yfirbygginga allra helstu gerða ökutækja og eftirvagna
- geta skipulagt og útfært rökrétt vinnuferli í nýsmíði ökutækis eftir því sem við á
- geta ráðlagt um mögulega viðgerð og leiðbeint um hagkvæmustu aðgerð frá sjónarmiði viðskiptavinarins með tilliti til óska hans um sem lægstan viðgerðakostnað, með hliðsjón af umferðaröryggi, ástandi, útliti og notagildi ökutækisins og jafnframt fylgt kröfum um umhverfisvernd
- geta leyst verk sín af hendi með aðstoð handbóka og annarra tiltækra stoðgagna
- geta leyst verk sín af hendi með hliðsjón af umferðarlögum, reglugerð um gerð og búnað ökutækja og með tilliti til umhverfissjónarmiða
- geta skráð vinnuskýrslur og verklýsingar í ferilskrá ökutækis
Til að kanna laun bifreiðasmíða er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR
Leit
Mynd











