7.12.2007
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun"
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun verður haldið dagana 20. og 21. des í Bílgreinahúsinu að Gylfaflöt 19.
Farið verður yfir uppbyggingu rafmagnsteikninga, tákna og teikniaðferða.
12.11.2007
Ökuritar
Ökuritanámskeið 7 og 8 des.
Farið er ítarlega í virkni og prófanir ökurita og lestur aksturskorta
2.11.2007
Námskeið fyrir bílasala.
Námskeið fyrir bílasala verður haldið dagana 19. nóvember til 04. desember.
23.10.2007
Loftfrískun AC
Loftfrískun AC
Fjallað er um uppbyggingu og gerð loftfrískunarkerfa, umhirðu þeirra og viðhald, hreinsun, aðferð við skipti á kælivökva og meðferð og förgun spilliefna
17.10.2007
Hjólastillingar og búnaður
Námskeiðið hefst þann 19.10.2007 - sjá nánar á tímatöflu námskeiðsins.
9.10.2007
Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík
Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.
5.10.2007
Námskeið 17 og 19 október
Öryggisbúnaður SRS
Hjólastillingar og búnaður
5.10.2007
Námskeið
Bilanagreining rafbúnaðar:
Farið er yfir grundvallarþætti rafmagnsfræðinnar og hegðun straums í straumrásum. Farið er yfir notkun rafmagnsteikninga og AVO mæla við bilanaleit
25.9.2007
Bættu um betur - Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR fræðsluseturs sérhæfir sig í að aðstoða einstaklinga við raunfærnimat og náms- og starfsval.
Sjá nánar tengil inn á síðu náms- og starfsráðgjafa hér hægra megin á síðunni.
17.9.2007
Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar
IÐAN fræðslusetur heldur námskeið í samvinnu við Háskólann í Reykjavík um bestu aðferðir rekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum og tilvonandi stjórnendum.
13.9.2007
Námskeið í Netkerfi (multiplex)
30.8.2007
Sundmeistari afhendir nýjan námsvísi

Jakob Jóhann Sveinsson margfaldur Íslandsmeistari í sundi afhenti Finnbirni Hermannssyni stjórnarformanni IÐUNNAR fyrsta eintakið af nýjum námsvísi í gær. Jakob Jóhann prýðir forsíðu námsvísisins að þessu sinni. Námskeiðsframboð IÐUNNAR er glæsilegt sem fyrr og geta aðiladarfélagar valið úr rúmlega 100 námskeiðum á haustönn. Námsvísirinn berst félagsmönnum í pósti á næstu dögum. Skráningar á námskeið eru á heimasíðunni hér til vinstri og í síma 5906400.
31.7.2007
B&L
Sund ehf. kaupir bifreiðaumboðið B&L
25.5.2007
Sveinspróf
Sveinsprófum í bifvélavirkjun er nú lokið, það voru 18 sem mættu til leiks, vegna fjölda próftaka þá var hópnum skipt niður í tvo hópa.
29.3.2007
Bættu um betur - Bílgreinar
Hófst þú nám í bifvélavirkjun, bílamálun eða bifreiðasmíði en laukst því ekki?
Leit
Mynd













