12.12.2008
Námskeið fyrir bílasala
Námskeið fyrir bílasala 12. janúar til
28. janúar 2009
Námskeiðið er 44 klukkutíma langt. Kennt er frá 08.00 til 12.00.
14.11.2008
Auglýsing um sveinspróf
14.11.2008
Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum
Fjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.
29.10.2008
IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf
Undirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).
16.10.2008
IÐAN á Akureyri
Í tilefni af heimsókn IÐUNNAR í fyrirtæki og skóla norðurlandi var boðið til móttöku á efstu hæðinni á Strandgötunni á Akureyri. Ferð IÐUNNAR hefur tekist mjög vel og fjöldi fyrirtækja og skóla hefur verið heimsóttur. Mikilvægar upplýsingar hafa fengist í ferðinni sem verið er að vinna nánar úr. Skólafólk og fagmenn úr greinunum sem tengjst IÐUNNI mættu í móttökuna á Strandgötunni sem tókst með ágætum.
15.10.2008
IÐAN á norðurlandi
Starfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs eru þessa vikuna að kynna starfsemi fyrirtæksins á norðurlandi. Í boði eru fjölbreytt námskeið og þjónusta fyrir félagsmenn IÐUNNAR. Starfsmenntadeildin kynnir þjónustu fyrirtækisins við iðn- og starfsnámsnemendur og náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR kynna upplýsingaveitu um iðn- og starfsnám. Í Verkmenntaskólanum á Akureyri fór fram kynning á þjónustu starfsnámsdeildar.
4.9.2008
Nýr námsvísir kemur út í dag!
Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.
Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.
11.8.2008
Haustönninn að fara á stað
Haustönnin byrjar 1 sept með hjólastillingarnámskeiði, og þá er allt komið á fullt hjá bilgreinasviðinu.
Námsvísirinn er að berast ykkur og þar er frábært úrval af námskeiðum.
Hlakka til að sjá ykkur hér á Gyltaflötinni.
11.5.2008
Aðalfundur IÐUNNAR fræðslusetur
Aðalfundur var haldinn þriðjudaginn 29. apríl sl. á Grand Hótel. Í stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs árið 2008 eru:
| Aðalmenn: | Varamenn: |
| Bjarni Thoroddsen SI | Atli Vilhjálmsson BGS |
| Finnbjörn Hermannsson Samiðn | Erna Hauksdóttir SAF |
| Georg Páll Skúlason FBM | Heimir Kristinsson Samiðn |
| Guðmundir I. Skúlason BGS | Haraldur Dean Nelson SI |
| Hilmar Harðarson FIT | Hákon Hákonarson Samiðn |
| Magnús Magnússon VM | Ingi Bogi Bogason SI |
| Níels Olgeirsson MATVÍS | Ingólfur Sverrisson SI |
| Ragnheiður Héðinsdóttir SI | Stefán Ólafsson FBM |
| Jón Steindór Valdimarsson SI | Sveinn Ingason FIT |
| Þorsteinn Víglundsson SI | Þorsteinn Gunnarsson MATVÍS |
18.4.2008
Íslandsmót iðngreina sett í dag!
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.
17.4.2008
Verk og vit 2008
IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.
10.4.2008
Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir
Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)
17.3.2008
Bílasölunámskeið
Bílasölunámskeið
Undirbúningsnámskeið vegna prófs til leyfis sölu notaðra bifreiða. Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl
12.2.2008
Sveinspróf í bifvélavirkjun.
Sveinspróf í bifvélavirkjun.
Í fyrsta skipti í sögu þessara prófnefndar stóðust allir prófið.
14.1.2008
Hjólastillingar og búnaður
Hjólastillingar og búnaður
Námskeiðið hefst þann 18.01.2008
Farið er yfir uppbyggingu hjólabúnaðar, hjólahorna og framkvæmd skoðunar og stillinga á hjólabúnaði
Leit
Mynd











