21.1.2010
Stefnumótun IĐUNNAR í fullum gangi
Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)
18.1.2010
ÖKURITAR
Ökuritar
Þátttakenda afla sér þekkingu á uppbyggingu og virkni ökuritakerfa og gera þá hæfa til ísetningar og kvörðunar á ökuritum
14.1.2010
Bílasalar
Námskeið fyrir verðandi bilasala verður haldi í húsakynnum Tæknifræðingafélagi Íslands að Engjateigi 9 105 Reykjavík og byrjar námskeiðið stundvíslega kl 09.00 fyrsta morgunninn.
7.1.2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út
Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.
Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.
Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
Leit
Mynd











