Beint á leiðarkerfi vefsins

1.11.2011

Stórt skref til eflingar starfsnámi

VinnustaðanámssjóðiurKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Þetta er merkur áfangi í eflingu starfsnáms í landinu en samtals var úthlutað 57 milljónum til 65 fyrirtækja og njóta um 170 nemar góðs af þessari fyrstu úthlutun. Ingólfur Haraldsson hótelstjóri á Hilton Nordica tók á móti styrknum fyrir hönd síns fyrirtækis.

31.10.2011

Bílasalar

Undirbúningsnámskeið vegna prófs til leyfis sölu notaðra bifreiða verður haldið í Reykjavík 7.-23. nóvember 2011.

4.10.2011

Námskeið á haustönn

Ágætu bílgreinafélagar.

Nú þegar haustið er komið rennur upp ný önn með fræðslu og fróðleik á vegum IÐUNNAR.

Okkur að kynna fyrir ykkur þau námskeið sem eru í boði og hvetja ykkur til að sækja frekari þekkingu og færni sem nýtist í ykkar störfum á þessum námskeiðum, meðfylgjandi er upptalning yfir þau námskeið sem eru í boði á þessari haustönn.

Eins og sjá má er fjölbreytt úrval námskeiða bæði nýjum og eldri námskeiðum sem hafa verið endurbætt en eftir að niðurstöður könnunar sem send var á vormánuðum til bílgreinarinnar lá fyrir fjallaði fagnefnd bílgreinasviðs IÐUNNAR um niðurstöðurnar ásamt þörfum og nauðsyn námskeiða sem hentuðu bílgreininni í dag, eru þetta fyrstu merki þeirrar vinnu sem sjást hér en fleira af fróðlegu efni er enn í vinnslu.

Ítarlegir og fræðandi fagfyrirlestrar voru haldir á bílasýningunni sem haldin var í Fífunni í maí síðastliðnum í boði starfsgreinaráðs en við höfðum vonast eftir meiri þátttöku bílgreinarinnar en raunin varð þar sem um fríar kynningar og fyrirlestra var að ræða, þrátt fyrir það verður stefnt á að halda sambærilegar kynningar og fagfyrirlestra eftir því sem efni standa til hverju sinni.

Við viljum einnig minna bílgreinafólk á rétt þeirra til að sækja námskeið samkvæmt kjarasamningum og einnig ferðastyrki ef um langan veg er að fara.

18.5.2011

Dagskrá námskeiða og fræðsluerinda bílgreina 20. til 22. maí

"Frítt er á alla þá viðburði sem taldir eru upp í dagskránni hér að neðan"

Dagskrá /Föstudaginn 20. maí.

1. CABAS upprifjun-framhaldsnámskeið fyrir fagaðila haldið í Bílgreinahúsinu að Gylfaflöt frá kl 9 til kl 12.    Skráning hér 

2. Nýorka - kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 9 til 10.                                                         Skráning hér  

3.  Metan - kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 10 til 11.                                                        Skráning hér

4. Hybryd tæknin kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 11 til 12.                                               Skráning hér

5. Vinnueftirlitið-áhættumat kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 13 til 14.                                 Skráning hér 

6. Nýjungar í burðarvirki kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 14 til 15.                                 Skráning hér

7. CMT suða kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 15 til 16.                                                    Skráning hér

8. Málningarumræður innflytjenda kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 16 til 17.                   Skráning hér

Dagskrá /Laugardaginn 21. maí.

1. Metanbíllinn kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 8 til 9.                                               Skráning hér

2. Rafmagnsbíllinn kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 9 til 10.                                         Skráning hér

3. Metan-ísetning/umhirða kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 10 til 11.                            Skráning hér

4. CARBON recycling kynning fyrir fagaðila haldið í Fífunni fundarsal kl 11 til 12.                                     Skráning hér

5. Önnur mál með kaffi og kleinum fyrir fagaðila í Fífunni fundarsal kl 12 til 14.                                       Skráning hér

"Frítt er á alla þá viðburði sem taldir eru upp í dagskránni hér að ofan"

Minnum einnig á að þeir sem eru félagar FIT/IÐUNNAR og eiga um langan veg eiga að sækja á námskeið  "ráðstefnunnar" er bent á að hægt er að sækja um ferðastyrki til IÐUNNAR fræðsluseturs.

Fagaðilar bílgreina fjölmennum og tökum virkan þátt í fyrirlestrum og námskeiðum á "ráðstefnunni" ásamt því að skoða  bílasýninguna í Fífunni.           "allt á sama stað".

Bílgreinasvið IÐUNNAR 

T.S.B. - Tæknisetur bílgreina.

17.5.2011

Dagskrá námskeiða og fræðsluerinda bílgreina 20. til 22. maí

Dagskrá vegna kynninga og námskeiða  sem haldin verða í tengslum við bílasýningu í Fífunni í Kópavogi dagana 21. og 22. maí  er hér að neðan auk þess sem hún er komin inn á vefinn en þar geta aðilar skráð þátttöku sína, einnig verður hægt að skrá sig á hverri kynningu. 

3.5.2011

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í maí og júní ef næg þátttaka fæst:

Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2011.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd