Beint á leiðarkerfi vefsins

Neytendaþjónusta

 

Neytendaþjónusta IÐUNNAR Bílgreinasviðs

Neytendaþjónusta IÐUNNAR Bílgreinasviðs nær allt frá því að gera opinberar reglur er varða viðskipti innan bílgreina aðgengilegar til þess að meta ástand bifreiða eftir viðgerðir.

Opinberar reglur sem eru birtar á heimasíðu Bílgreinasviðs eru lög um þjónustukaup nr. 42 16. maí 2000, samantekt Bílgreinasviðs um lög um þjónustukaup er nefnist „Áhrif laganna á rekstur verkstæða”, lög um verslunaratvinnu nr. 28 1. október 1998 með síðari breytingum, reglugerð um starfsábyrgðartryggingu bifreiðasala nr. 46 2003, reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki nr. 44 2003, viðauki I við reglugerð nr. 44 15. janúar 2003 og viðauki II við reglugerð nr. 44 15. janúar 2003.

Neytendum er bent á Félag íslenskra bifreiðeigenda, http://www.fib.is/og Neytendasamtökin, http://www.ns.is/til að afla sér nánari upplýsinga um viðskipti í bílgreinum.

Matsverkefni eru ýmsum takmörkunum háð. Fyrst og fremst þarf að semja um mat og matsgerðir fyrirfram. Skilyrði fyrir því að IÐAN Bílgreinasvið meti ástand bíla er að það matið sé gert á faglegum grundvelli og sé byggt á upplýsingum frá viðkomandi bílaframleiðanda. Markmið Bílgreinasviðs er að mat og matsgerð standist kröfur sem gerðar eru um slíka vinnu og gögn hjá dómstólum. Bílgreinasvið tekur ekki afstöðu til hagsmuna málsaðila heldur lætur reyna á fagleg sjónarmið í mati og matsgerðum.

Reglur um starf bifreiðasala (pdf).

Lög um þjónustukaup (pdf).

Áhrif laga á rekstur verkstæða (pdf).

 

 


Slóðin mín:

Neytendaþjónusta

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd