Beint į leišarkerfi vefsins

Um Bķlgreinasviš

Bílgreinasviðið er hlutafélag að jöfnum hluta í eigu Bílgreinasambandsins og Félags iðn- og tæknigreina. Markmið og tilgangur IÐUNNAR bílgreinasviðs er að annast fræðslustarf fyrir starfsmenn og fyrirtæki í bílgreinum. Milli IÐUNNAR og Fræðsluráðs bílgreina er samningur sem kveður á um að bílgreinasvið annist fræðslustarf samkvæmt ákvæðum kjarasamnings um eftirmenntun í bílgreinum. Fyrir vikið renna framlög til fræðslusjóðsins til IÐUNNAR bílgreinasviðs.
Bílmennt e.h.f. er einkahlutafélag að jöfnum hluta í eigu Bílgreinasambandsins og Félags iðn- og tæknigreina. Markmið og tilgangur félagsins er að eiga og reka húsnæði fyrir starfsemi IÐUNNAR bílgreinasviðs. Bílgreinasviðið hefur um 420 m² til ráðstöfunar.

Ýmis þjónusta IÐUNNAR bílgreinasviðs.

Fræðslustarf er megin verkefni bílgreinasviðs. Starfsemin hefur einkum miðast við:

Iðngreinar, bifreiðasmiði, bifvélavirkja, bílamálara.
Stoðgreinar, móttökumenn á verkstæðum, sölumenn varahluta.
Þjónustugreinar, smurstöðvar, bensínstöðvar.
Fyrirtæki, nám fyrir ýmsa starfshópa innan fyrirtækja í samstarfi við fyrirtækin.
Bílasala, nám fyrir löggildingu bílasala.
Samstarf, nám í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir.
Ráðgjöf og skipulagsvinna vegna fræðslustarfs í fyrirtækjum er veitt af bílgreinasviði en unnin í samvinnu við fyrirtækin. IÐAN bílgreinasvið mælir með nokkrum aðferðum til að finna út hvaða þekkingu starfsmenn hafa og áætlun um nám er byggð á: Í samráði við fyrirtæki eru tekin viðtöl við viðgerðarmenn til að finna út þekkingarstig þeirra, áhuga- og færnisvið í viðgerðum og hvaða áætlanir þeir hafa um símenntun í viðgerðum. Í framhaldi af viðtölum tekur verkstæði og starfsmaður ákvörðun um nám. Í samráði við fyrirtæki gangast starfsmenn undir könnunarpróf en í þeim kemur fram hver þekking þeirra er. Samkvæmt niðurstöðum úr könnun taka verkstæði og starfsmaður ákvörðun um nám.

Útleiga á aðstöðu til fyrirtækja í bílgreinum er þáttur í starfi IÐUNNAR bílgreinasviðs. Fyrirtækin nota aðstöðu hjá bílgreinasviði til eigin námskeiða, kynninga á bílum fyrir starfsmenn sína og viðskiptavini og fyrir kennara sem koma frá öðrum löndum.

Aðstaða IÐUNNAR bílgreinsviðs til kennslu hefur fengið mikið lof gesta frá ýmsum löndum Evrópu.
Upplýsingar um þjónustu IÐUNNAR bílgreinasviðs eru veittar í síma 586 10 50.


Slóšin mķn:

Um IŠUNA Bķlgreinasviš

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd